5.5.2009 | 15:32
Á Bjarni Ben að ráða fyrir alla......
Hvernig er það, talar Bjarni fyrir munn allra sjálfstæðismanna á þingi? Eiga ekki þingmenn að fara eftir egin sannfæringu en ekki fylgja flokkslínunni í blindni? Hafa ekki þingmenn unnið þess eið að láta samviskuna ráða, en ekki flokkinn? Bjarni veit að það eru þingmenn innan flokksins sem eru hlynntir viðræðum um aðild, þó ekki væri nema til þess að sjá hvort við getum fengið að halda okkar helstu auðæfum (fiskimiðunum), hvað er að því að fara í viðræður og láta síðan þjóðina skera úr um það hvort við förum inn eða ekki. Er Bjarni svona hræddur við að láta þjóðina kjósa um þetta mál?
![]() |
Kemur ekki til greina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (5.8.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.